Beint í efni
En
MS svarar kalli Ketó-aðdáenda með rifnum cheddar osti

MS svarar kalli Ketó-aðdáenda með rifnum cheddar osti

Lágkolvetna- og Ketó-mataræði hefur verið sérstaklega vinsælt á Íslandi síðustu misseri og þar leika hinir ýmsu ostar stór hlutverk því þeir eru alla jafna án kolvetna. Einn af þeim ostum sem eru í uppáhaldi hjá stórum hluta þessa hóps er Óðals Cheddar og er því gaman að segja frá því að MS hefur svarað kalli neytenda með því að bjóða nú upp á rifinn cheddar ost í 200 g pokum. Í hverjum 100 g af rifnum cheddar eru 34 g fita, 23 g prótein og engin kolvetni. Rifinn cheddar ostur hentar fullkomlega í alls kyns matargerð og má þar nefna heimatilbúið ostasnakk, eggjakökur, ketó pizzubotna og í dásamlegar cheddar vöfflur.

Cheddar vöfflur með avókadó og beikoni

Uppskrift fyrir eina vöfflu:

2 stk. egg
50 g rifinn cheddar ostur
Chili salt, eða salt og chili flögur eftir smekk

Blandið saman og bakið í vöfflujárni.
Ofan á vöffluna er svo gott að setja avókadó, stökkt beikon, chili salt og ólífuolíu.