Beint í efni
En
Mjólkursamsalan styrkir hjálparsamtök um 2,3 milljónir fyrir hátíðarnar

Mjólkursamsalan styrkir hjálparsamtök um 2,3 milljónir fyrir hátíðarnar

Fulltrúar allra félaganna segja að þörfin fyrir aðstoð sé mikil og að stór hópur fólks leiti til þeirra fyrir hátíðarnar. Með þessum styrk vill Mjólkursamsalan leggja sitt af mörkum til að styðja við bakið á þeim hópi einstaklinga sem leitar aðstoðar í formi matarúthlutunar en fjölmargar matargjafir fara frá félögunum fyrir jól. Hjálparsamtökin starfa allan ársins hring þó mestu annirnar séu í kringum jólahátíðina og er það von fyrirtækisins að styrkirnir nýtist sem best.

Mjólkursamsalan þakkar stjórnendum og sjálfboðaliðum hjálparsamtakanna fyrir óeigingjarnt starf og sendir þeim og skjólstæðingum þeirra sínar bestu óskir um gleðileg jól.