Beint í efni
En
Keppni í Mjólkurbikarnum 2021 er hafin

Keppni í Mjólkurbikarnum 2021 er hafin

Keppni í Mjólkurbikarnum 2021 er hafin og eru fjölmargir leikir á dagskrá næstu daga.

Fyrsti leikur í Mjólkurbikar karla fór fram sumardaginnn fyrsta þegar Njarðvík sigraði KH 3-0 í Reykjaneshöllinni. Tólf leikir fara svo fram föstudaginn 23. apríl og aðrir tólf laugardaginn 24. apríl. Sex leikir verða á sunnudag og fyrstu umferð lýkur svo á mánudag með viðureign Reynis H. og Aftureldingar á Hellissandsvelli.
Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skoða leikina nánar.

Mjólkurbikar karla 2021

Tveir leikir eru í 1. umferð Mjólkurbikars kvenna og fara þeir báðir fram mánudaginn 26. apríl. Annars vegar mætast SR og KM á Eimskipsvellinum í Laugardal og hins vegar ÍR og KH á Herts vellinum í Breiðholti. 2. umferð fer svo fram dagana 30. apríl til 2. maí og 3. umferð verður leikin um miðjan maí.
Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skoða leikina í fyrstu umferðunum.

Mjólkurbikar kvenna 2021