Beint í efni
En
Ísey skyr sérútgáfa með jarðarberjum og hvítu súkkulaði

Ísey skyr sérútgáfa með jarðarberjum og hvítu súkkulaði

Við kynnum með stolti Ísey skyr með jarðarberjum og hvítu súkkulaði! Hér er um svokallaða sérútgáfu að ræða sem verður aðeins á markaði í nokkra mánuði. Bragðið er einstakt svo ekki sé meira sagt og það sama má segja um umbúðirnar en falleg landslagsmynd af Goðafossi í vetrarbúningi prýðir dósina.  Ísey skyr með jarðarberjum og hvítu súkkulaði er próteinríkt og kolvetnaskert en það eru einungis 4,3 g kolvetni í hverjum 100 g.Láttu þessa einstöku bragðtegund ekki framhjá þér fara.