Beint í efni
En

Innköllun á Stoðmjólk frá Mjólkursamsölunni

Innköllun á Stoðmjólk frá Mjólkursamsölunni

Tilkynning frá Mjólkursamsölunni, 22. mars 2022

Mjólkursamsalan hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla eina tiltekna framleiðslulotu af Stoðmjólk. Þessar fernur eru merktar: Best fyrir 31.03.2022.

Ástæða innköllunarinnar er að þessi framleiðslulota vörunnar stenst ekki gæðakröfur vegna geymsluþols.

Upplýsingar um vöruna:

Vöruheiti: Stoðmjólk

Strikamerki: 5690527185004

Nettómagn: 500 ml

Best fyrir dagsetning: 31.03.2022

Neytendum sem keypt hafa vöruna með framangreindri dagsetningu er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Mjólkursamsölunnar.

Mjólkursamsalan biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur hafa skapast.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn gæðadeildar Mjólkursamsölunnar í síma 450 1100 eða 858 2222 eða hægt er að koma ábendingum á framfæri í netfangið abendingar@ms.is